Dissum skaupiđ, dettum íđa!
Jæja... Ég er búin að hafa það mjög gott um jólin, vona að þið getið sagt það sama :) Ég lét loksins verða af því að horfa á Mamma Mia, hún er æði! Horfði líka á Brúðgumann en ég varð fyrir vonbrigðum með hana. Spilaði líka Trivial með vinum Davíðs og auðvitað rústuðum við Davíð því hehe...
Ég þakka kærlega fyrir jólagjafirnar og jólakortin. Ég ætla að segja hvað ég fékk:
Frá pabba og Jóhönnu: Lítið myndaalbúm með myndum þegar ég var lítil og 15.000 krónur.
Frá mömmu og Jóni: Buxur, vesti og skyrta.
Frá Davíð: Stígvél úr Bossanova.
Frá Dagbjörtu og fjölskyldu: Skyrta.
Frá Sigrúnu og fjölskyldu: Glös, eldföst mót og tvö box og tvö rifjárn sem þú getur notað sem lok á boxin.
Frá Gísla og Góu: Rúmföt.
Frá ömmu Dæju: Ullarkjóll.
Frá Önnu Kristínu vinkonu: Kjóll.
Frá Sigurborgu: Hálsmen.
Frá tengdó: Náttföt úr Next.
Frá Hugrúnu systur Davíðs og fjölskyldu: Vigt.
Ekki slæmt ha? ;)
Ég kom í bæinn á föstudaginn. Fór svo til Eyja á laugardaginn því litli prinsinn hjá Gísla og Góu var skírður í gær. Hann heitir Stefán Geir, í höfuðið á báðum öfunum. Mér finnst þetta mjög flott nafn og ég óska þeim enn og aftur til hamingju... Ég hafði rangt fyrir mér, var viss um að þau myndu skíra eitthvað út í loftið :)
Ég fór á ball í Höllinni á Laugardaginn með Sssól. Það var sko vel tekið á því... Hefði átt að sleppa síðustu ferðinni á barinn því ég hef sjaldan verið jafn þunn og ég var í gær! Hafði ekki einu sinni lyst á kræsingunum í skírnarveislunni, ekki gaman að missa af þeim!
Svo er það aftur Grundó um áramótin... Hvað annað hehe :) Förum örugglega bara á gamlársdag. Svo bað ég um frí 2.janúar þannig að ég fæ langa helgi áður en skólinn byrjar. Enda var sagt við okkur að það væri ekkert mál að fá frí í kringum jól og áramót, það eru svo fá börn skráð þá!
Ég er spennt fyrir áramótaskaupinu. Það verður af nógu að taka! Búið að vera mjög viðburðaríkt ár. Ég held að annað hvort verði það mjög misheppnað eða algjör snilld, ekkert þar á milli.
Annars er ekkert nýtt að frétta, bara búið að vera leti, leti, leti um hátíðarnar...
Þannig að ég segi þetta bara gott í bili. Bless bless og hafið það gott! Gleðilegt ár :D
Lag færslunnar: MGMT - Kids
I hope it's gonna make you notice
Ég kláraði prófin 10.desember og er búin að fá allar einkunnirnar. Þær eru svona:
Markaðsfræði: 8
Þjónustusamskipti (próflaus áfangi): 6 (Ekki sátt við það, konan er svo smámunasöm og bregst illa við ef maður tjáir sig eitthvað við hana þannig að það þýðir ekkert annað en að sætta sig við þetta :S Samt fúlt því þetta er próflaus áfangi!)
Ferðaenska: 8
Ráðstefnur og fundir: 7
Ferðafræði: 9. Ritgerð: 10
Ferðalandafræði Íslands: 9. Ritgerð: 9
Farseðla - og farbókunarkerfi: 9
Upplýsingatækni: 9
Meðaleinkunnin þegar ritgerðirnar eru ekki taldar með er rétt rúmlega 8...
Svo eru jólin bara að skella á. Svo fljótt að líða! Ég keypti allar jólagjafirnar í byrjun desember fyrir utan gjöfina hans Davíðs. Keypti hana svo um daginn þannig að ég er alveg búin. Ég hef ekki verið í neinu stuði eða haft nennu til að gera jólakort þannig að þið vitið af því; ég sendi semsagt ekki nein jólakort í ár. Ég verð hjá Davíð bæði um jól og áramót. Við komum samt í bæinn inn á milli, þurfum að vinna bæði og svo fer ég líka til Eyja í skírnina eins og áður sagði. :)
Próflokadjammið síðustu helgi var mjög gaman enda er þetta svo skemmtilegur hópur ;) Annars er ég bara búin að taka því rólega þessa helgina. Kíkti aðeins í Smáralindina með Davíð í gær, hann var að kaupa jólagjafirnar enda ekki byrjaður á þeim hehe... Svo fór ég í útskriftarveislu hjá Rúnu Sif frænku. Alltaf gaman að hitta ættingjana sem maður hittir ekki mjög oft. Svo í kvöld förum við Davíð í fimmtugsafmæli hjá mömmu hans á Hótel Sögu. Fjögurra rétta matseðill mmm...:)
Annars ætla ég að segja þetta gott í bili.
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla. Vonandi hafið þið það gott um jólin. Borðið á ykkur gat og njótið þess að slappa af...:)
Jólakveðja, Kristín =)
Lag færslunnar: Kings of Leon - Use Somebody
I don't stand out and I don't fit in
En já, núna er ég bara að chilla í nýju íbúðinni :D Þríf aðeins inn á milli, búin að vaska allt upp til dæmis, dugnaður í mér... Það er bara vandamál með fötin mín, á eftir að redda plássi fyrir stóran hluta þeirra. Ef þið þurfið að losa ykkur við kommóðu endilega látið mig vita! Svo vantar okkur líka eiginlega lítinn og sætan sófa... sem tekur samt marga í sæti haha ;) Annars elska ég að búa hérna :D Bónus er nokkrum skrefum frá, ótrúlega þægjó! Svo er ég í göngufjarlægð frá 6 vinkonum mínum, ætlum að stofna saumaklúbb :)
Davíð er á Hvolsvelli núna að vinna, kemur á morgun. Hlakka til =) Hann er búinn að vera svo mikið frá undanfarið, hvort sem það er Amsterdam, bústaður með vinnufélögunum eða vinna úti á landi.
Ég fór til Eyja síðustu helgi. Aðeins að kíkja á liðið, vonaði að krílið myndi fæðast þá en nei það er eitthvað að láta bíða eftir sér :P Notaði líka tímann í að læra auðvitað.
Á laugardaginn er ég að fara að passa Svein Stefán litla sæta frænda... Og um kvöldið fer ég á Tapasbarinn með bekknum í góðan mat og Mojito :) Mmm... Svo ætlum við Sigurborg að gera aðra tilraun til að hittast, gekk ekki vel síðast hehe...
Ég er eiginlega búin að ákveða að ég ætla að vera hjá Davíð um jólin. Svo verð ég auðvitað líka hjá honum um áramótin, þetta verður þá fjórða skiptið sem ég verð í Grundó um áramótin. Ég get ekki hugsað mér að djamma annars staðar þá! Annars er þetta alltaf rosalega leiðinleg ákvörðun, hvar skal verða um jólin... Ég fæ svo mikið samviskubit yfir þeim sem ég verð ekki hjá :( Sucks...
Ég er komin með jólaklippinguna, þökk sé Katrínu :) Ókeypis í þokkabót :D Núna er ég orðin óð, langar að láta klippa meira af hárinu! Langar í algjört makeover! :P
Og blessuð sé minning Rúnars Júlíussonar. Hann var svo mikill töffari. Dó samt líka á töff hátt!
En þetta er orðið gott í bili. Bless og góða helgi! :)
Lag færslunnar: Emiliana Torrini - Big Jumps
Ef vćrir ţú hjá mér vildi ég glađur verđa betri en ég er
Ég minnkaði aðeins við skuldirnar mínar í síðustu viku, vei... Ég og Davíð lögðum í púkk og borguðum upp lánið á bílnum. Núna eigum við hann semsagt saman. Fínt að vera laus við þetta lán. Ég ætla að vinna í því núna að borga upp skuldirnar, þó það séu erfiðir tímar framundan...:(
Var í munnlegu enskuprófi í gær, gekk ágætlega... Við Berglind vorum saman í hóp og tókum eiginlega bara kæruleysið og “þetta reddast” á þetta, nenntum ekki að læra mikið, komnar með nóg af lærdómi hehe :P En ég fékk 7,1 fyrir það, hefði getað verið betra :S En samt ekkert svo slæmt. Annars fékk ég 9,1 í kennaraeinkunn í ensku og er alsæl með það! :D Núna eru öll verkefnin búin og prófin næst á dagskrá. Ég er svo fegin með það, þó að próf eru yfirleitt ekkert svakalega spennandi. En ég tek bara Pollýönnu á þetta :)
Síðasta helgi var rosalega kósý og fín, ég gerði EKKERT merkilegt þá! Var raddlaus og enn hálfslöpp eftir smá veikindi nokkrum dögum áður. Ætlaði í afmæli hjá Sigurborgu sem var á Flúðum á föstudeginum en ég þorði ekki að taka áhættu og fara svona rétt fyrir próf, svo myndi ég veikjast aftur og þá yrði ill í efni. Ég lifði bara á te og öðrum vökva og er búin að jafna mig núna :) Þegar ég var raddlaus og var að raula eitthvað lag minnti það mig á Phoebe þegar hún er hás :P My sticky shoes, my sticky sticky shoes... Why you stick on me, baaaaby? Haha ;)
Davíð er í Amsterdam að leika sér með Halla og Danna. Fór á laugardaginn og kemur næsta laugardag. Kemur beint í flutningana :D Við flytjum semsagt á sunnudaginn og ég er svo spennt!
Næsta helgi fer í lærdóm (prófin byrja 1.desember) og vonandi get mun ég hafa nægan tíma til að flytja. Ég verð bara að vera dugleg að læra á föstudag og laugardag. Hitti vonandi Sigurborgu líka um helgina.
Í desember mun ég verða módel hjá Katrínu. Ég mun semsagt fá ókeypis klippingu og litun, ekki slæmt svona rétt fyrir jólin ;) Hún þarf að taka svolítið mikið af því, þarf að sýna fram á breytingu en það er í lagi fyrir mér, mig langar í breytingu :) Ég geri þetta alltaf, þegar hárið mitt er farið að síkka eitthvað þá fæ ég leið og læt klippa meiri styttur í það t.d. hehe :P
Ég ætla að kaupa líkamsræktarkort hjá JSB á næstu dögum... Þau eru með svo góðan afslátt fyrir námsmenn. Fjórir mánuðir kosta bara 12.000 og níu mánuðir 20.000. Venjulega kostar einn mánuður þar um 10-11.000 krónur. Ágætis sparnaður þar! Tækjasalurinn þar er víst ekki stór en það er í lagi mín vegna. Er búin að fitna smá undanfarið held ég :( Ég hef bara ekki haft tíma til að hreyfa mig vegna anna. Nema ég hefði vaknað klukkan sex og því var ég eiginlega ekki að nenna!
Segjum þetta gott í bili.
Bæjó...:*
Lag færslunnar: Ragnheiður Gröndal – Flowers in the Morning (Hún er engill en ég fíla samt betur þegar hún syngur á ástkæra, ylhýra :) Annars syngur hún alltaf fullkomlega... )
Ég vćri til í pottinn, nennirđu ađ skrúfa frá?
Það helsta í fréttum af mér þessa dagana er að við Davíð fundum litla og kósý íbúð á Spítalastíg í Þingholtunum um daginn og erum þar af leiðandi að fara að flytja um næstu mánaðamót :D! Skoðuðum fjórar íbúðir í síðustu viku, tvær á Spítalastíg, eina á Ránargötu og eina í Neshaganum. Leist alveg langbest á aðra íbúðina á Spítalastígnum... Hún er bara 60 fermetrar en mjög flott, allt nýlegt í henni, litlar svalir og við höfum stóran garð til umráða líka. Fótbolti anyone? :D Ég get ekki beðið! Bara 13 dagar :)
Annars styttist í próf, bara tvær vikur eftir af skólanum og síðan skellur þetta á. Ég er nú nánast farin að hlakka til, þá eru þessi blessuðu verkefni yfirstaðin. Þá get ég bara legið í leti og lært fyrir próf, þarf ekkert að mæta í skólann nema í prófin auðvitað, úff það verður nice... Af hverju dettur öllum kennurum í hug að láta rigna yfir okkur verkefnunum á sama tímanum, á lokasprettinum þegar maður vill frekar undirbúa sig fyrir prófin? Það var til dæmis lítið sem ekkert að gera í september. Frekar pirrandi.
Það var staffadjamm á laugardaginn. Fórum í Actionary þar sem spennan var ríkjandi og mitt lið vann :P Kíktum svo niður í bæ.
Fyrir utan það fór
helgin í hópverkefnavinnu. Ég fékk mér ekkert nammi um helgina, er svo stolt af mér ;) Borðaði reyndar smá snakk í partýinu en samt, þetta er allt að koma!
Svo er afmæli hjá Sigurborgu næstu helgi, það verður haldið á Flúðum. Það verður diskóþema =) Fer með Selmu, verður örugglega skemmtileg tilbreyting að djamma í sveitinni :) Síðan er ég klárlega farin í djammpásu! Búið að vera svo mikið um að vera undanfarið. Næst djamma ég ekki fyrr en á áramótunum eða eitthvað :P
Davíð er að fara til Hollands næstu helgi með nokkrum vinum sínum. Verður í
viku og kemur síðan beint í flutningana :) Var ég búin að segja hvað ég hlakka
mikið til?
Mamma er líka á Tenerife núna, fór 11. og kemur aftur 25.nóvember. Ég bað hana um að kaupa jólagjöfina mína í H&M :D Er strax farin að hlakka til um jólin haha...
Ég er búin að kaupa tvær jólagjafir af 14. Það er þó byrjun! Er fegin að það sé eitthvað búið.
En ég læt þetta gott heita í bili.
Lag færslunnar: Baggalútur - Brostu
When I get sad, I stop being sad and be awesome instead. True story.
Á morgun er lúðrasveitin með tónleika. Mig langar rosalega að sjá pabba spila en ég verð bara með í anda.
Ég er svo ánægð með stelpurnar okkar sem eru komnar á EM! Glæsilegt hjá þeim. Þær eru snillingar =) Annað en strákarnir sem gerðu jafntefli við Kazakstan eða eitthvað álíka í sumar! Haha...
En jæja, fyrir utan að læra nánast alla síðustu helgi fór ég í afmæli hjá Karenu. Við fórum fyrst á Oliver og borðuðum þar, semsagt ég, Karen, Bríet, Ása Ninna, Guðrún, Svava, Tinna og Hildur. Mmm góður matur! Við gáfum afmælisbarninu allar saman en ég veit nú ekki hvort það sé prenthæft hérna... Híhí ;)
Á morgun eru tvenndarleikar ÍTR þar sem keppt verður í blindrabolta (sem er bara fyndin „íþrótt") og blaki. Ég get reyndar ekki verið alveg allan tímann því að um kvöldið er ég að fara í afmæli hjá Svövu. Hlakka til :)
Ég er alltaf svo upptekin um helgar að ég kemst aldrei á mótmælin á laugardögum sem hafa verið undanfarið... Vona að ég komist næst, ef það verður eitthvað þá. Maður verður að láta í sér heyra!
Ég er búin 10.desember í prófum, hí á ykkur sem eru búin seinna :P Það verður næs... Langar samt að fá mér aukavinnu um jólin en það er ekki hægt núna vegna you know what! Ansans vesen...
Um þessar mundir kemur enn og aftur þessi hausverkur um hvar ég á að vera um þessi blessuðu jól. Núna eru þrír möguleikar í boði og ég er frekar óákveðin :S
Annars er ég nánast strax farin að hlakka til um áramótin! :D Þau eru svo skemmtileg, elska þau.
Undanfarnar fréttir hafa sýnt það og sannað að hér á landi er spillingin í hámarki. Manni langar svo að gera uppreisn og flytja héðan, en ég hef bara engin tök á því núna eða á næstunni!
Svo styttist óðum í að ég verði frænka aftur, semsagt að systkini mitt muni fjölga mannkyninu :) Góa hans Gísla bróður á að eiga í byrjun desember! Tíminn er svo fljótur að líða... Hlakka svo til, ég verð að kíkja á krílið einhvern tímann í desember =) Svo kemur Dagbjört með annað barn á næsta ári, ég er löngu búin að ákveða það ;)
Annars hef ég ekki meira að segja nema góða helgi og allt það =)
Lag færslunnar: Duffy - Stepping Stone (ég dýrka hana gjörsamlega)
Brosandi :)
Annars var ég koma úr ríkinu. Eruð þið að grínast með hvernig verðlagið er orðið þarna? Corona, þessi litli og veiki bjór á rúmlega 200 krónur, pinkulítill lite sem er einn af ódýrustu bjórunum 160 krónur og maður getur ekki lengur keypt hvítvín á undir 1000 karli. En þetta er orðið svona alls staðar út af þið vitið hverju.
Ég hef alveg ýmsar skoðanir á „ástandinu í þjóðfélaginu í dag“ en ég ætla að gera ykkur þann greiða að viðra þær eins lítið og ég get á blogginu mínu héðan í frá. Eru ekki allir orðnir hundleiðir á þessu tali?
Ég fór í vettvangsferð með landafræðiáfanganum á sunnudaginn... Við fórum á ýmsa staði, Þingvelli og keyrðum Hvalfjörðinn svo dæmi séu nefnd. Það var mjög áhugavert. Ótrúlegt hvað maður veit lítið um landið sitt hehe...
Annars er búið að vera nóg að gera hjá mér í vikunni. Ég var til dæmis að vinna frá átta til hálfþrjú á miðvikudaginn en þá var starfsdagur kennara. Var alveg búin klukkan tíu um kvöldið þegar ég var búin í skólanum. Ég dáist að bekkjarfélögum mínum sem eru í fullri vinnu og fullu námi! Skil ekki hvernig þeir fara að því.
Svo er vetrarfrí í Melaskóla núna og þar af leiðandi engin börn, bara starfsdagur í vinnunni. Við höfum verið að taka til, vinna í ýmsum hugmyndum og skreyta fyrir hrekkjavökupartý sem verður á þriðjudaginn til dæmis. Svo er ég í fríi í vinnunni á mánudaginn :) Sem hentar sér vel vegna þess að ég er að fara í próf í markaðsfræði þá. Ég get lært allan daginn fram að því :D Plús alla helgina auðvitað.
Bíllinn minn er kominn á vetrardekkin :D Ég verð alltaf svo fegin þegar það er búið. Davíð er að fara vestur á Grundarfjörð um helgina til að vinna með pabba sínum og hann fær minn bíl lánaðan. Og það gengur ekki að bíllinn sé á sumardekkjum þá. En það er allt í lagi þó ég verði bíllaus um helgina, ég þarf hvort eð er að læra og svo er ég líka loksins komin með nemakortið mitt í Strætó þannig ef ég þarf að fara eitthvað þá reddast það alveg...
Ég er að fara í Halloween partý hjá bekknum mínum í kvöld :D Hlakka til. Ég ætla að vera Wednesday Adams ;) Ohh Adams fjölskyldan var svo skemmtileg, ég fæ þvílíkt nostalgíukast við að hugsa um þau! Partýið verður haldið í Grafarholtinu sem hentar mér vel, rétt hjá Grafarvoginum. Get þess vegna labbað heim hehe... Nenni ekki að kíkja í bæinn, ég þarf að læra svo mikið um helgina.
Svo er að ég held staffapartý á morgun en ég þarf eiginlega að láta lærdóminn ganga fyrir. Það er líka eitthvað svaka staffapartý 15.nóvember þannig að þá mun ég bara vera í úber stuði :)
Jæja, ég er að spá í að fara að glósa úr markaðsfræðibókinni Sigur í samkeppni. Það er svo skemmtilegt. :P
Góða helgi =)
Lag færslunnar: Coldplay - Lost
Lćgđ
Allavega...... Nánar
I'm feeling rough, I'm feeling raw I'm in the prime of my life
Var í skólanum í gær frá 17-22 og í dag frá 9-14. Og aftur á morgun kl.9-13:30. Nám er nefnilega vinna! Þetta er FBÓ áfanginn, erum núna að læra á Amadeus bókunarkerfið sem mörg flugfélög, ferðskrifstofur og fleiri nota. Við tökum þetta með trompi svo við getum klárað áfangann í næstu viku. Annars er þetta bara nokkuð skemmtilegt og það bætir það upp að þurfa að vera í skólanum alla helgina. Og já, eins og ég sagði í athugasemdum síðustu bloggfærslu þá fékk ég 9,5 í „klaufavilluprófinu“ :D Og ég fékk ekki einu sinni villur þar sem ég hélt að ég hefði gert vitlaust. Score! Stundum er ágætt að vera svartsýnn hvað þetta varðar :)
Ég fékk þónokkuð meira útborgað í vikunni en ég hélt :D Alltaf gaman þegar það gerist. Plús að ég fékk orlofið mitt borgað frá Holtinu þannig að þetta varð að tvöfaldri ánægju. Og síðan á ég eftir að fá launin frá Dubliner, vona bara að það standist... Fór áðan og ætlaði að ná í launin en þau voru ekki komin... Vonandi reddast það.
Starfsdagurinn hjá ÍTR fyrir viku var bara mjög skemmtilegur. Var á yfirvinnukaupi í 8 tíma sem ég fæ borgað í nóvember, me likes :D
Var ég búin að segja að bekkurinn minn er að spá í að fara á ferðamálasýningu í Mílanó í febrúar á næsta ári? Allavega, ég var í fyrstu alveg ákveðin í að fara og var orðin mjög spennt en eftir að hafa hugsað málið til enda ákvað ég að vera skynsöm í þetta skiptið og hætta við það. Frekar að spara þann pening, nenni ekki að vera að stressa mig á því að spara hverja einustu krónu sem ég á liggur við enda er ekkert svo langt í febrúarmánuð. Ég er nú bara fátækur námsmaður hehe... Svo er evran líka orðin svo fáránlega dýr að þetta er löngu hætt að vera fyndið.
Talandi um gjaldeyri, peninga og allt það... Viðskiptabankinn minn var bara næstum því kominn á hausinn og við hin höfðum fæst einhverja hugmynd um það... En það er gott að honum var bjargað. Samt er ástandið í þjóðfélaginu og í rauninni heiminum öllum alveg hræðilegt. Nú fyrst í þessari viku er ég virkilega farin að finna fyrir hræðslu og áhyggjum. Hef lítið tekið mark á þessu krepputali hingað til (þó ég hafi alveg haft áhyggjur eins og allir hinir) enda hafa fjölmiðlar oft gert of mikið úr þessu að mínu mati.En núna fer útlitið að vera dekkra og dekkra! Vonum bara að ríkisstjórnin muni loksins fara að gera eitthvað af viti og að það muni nást árangur á þessum fundi/fundum í Ráðherrabústaðnum um helgina... Annars hef ég ekki mikla trú á honum Geir Haarde. Hvernig í ósköpunum komst hann svona langt í pólitík? Hann er algjör jólasveinn.
Svo byrjaði bara að snjóa í fyrradag. Ég lenti í smá hremmingum þegar ég var á leiðinni heim úr skólanum. Keyrði á skilti t.d., þvílíkt stuð. En það sést ekkert mikið á bílnum. Annars er mér sama hvort það séu einhverjar beyglur á honum, bara að hann sé ökufær, þá er ég sátt ;) Ég er líka mjög fegin núna við að hafa keypt notaðan bíl. Lánið á honum er ekki búið að hækka mikið, sérstaklega ekki miðað við nýja/nýlega bíla.
Annars gengur bara ágætlega í skólanum. Fyrir utan hvað ég get verið feimin og oft óörugg í framkomu þó ég reyni annað, ÞOLI ÞAÐ GJÖRSAMLEGA EKKI... En ég hef ekki hugmynd um hvernig ég get lagað það, því miður :(
Skellti mér í klippingu og litun hjá Iðnskóla Hafnarfjarðar í gær. Kostaði heilar 2.000 krónur, algjört rán ;) Haha... Er bara mjög ánægð með útkomuna.
Og frá og með morgundeginum eða kannski mánudeginum er ég hætt að borða nammi! Þetta er eitur og maður fær ógeð eftir nokkra mola. Ugh.
Jæja hafið það gott í kvöld og það sem af er helginni. =)
Lag færslunnar: MGMT - Time To Pretend
Rock, hard place; Me.
Eitt af því sem er mjög hvimleitt við sjálfa mig er hvað ég er gjörn á að gera klaufavillur í prófum, sérstaklega þegar ég er að gera útreikninga. Var nefnilega í FBÓ prófi í gær. Ég var mjög sátt þegar ég gekk út úr prófinu, hélt að mér hefði gengið svona glimrandi vel en síðan fattaði ég að ég gerði tvær klaufavillur í tveimur dæmum sem giltu samtals 35%! Og þarf ég að nefna að lágmarkseinkunnin er 7? Úff, skamm Kristín, skamm. Er í fýlu við sjálfa mig þessa stundina. Ég vona samt að kennarinn gefi mér einhver stig fyrir dæmin því að útreikningurinn var réttur en ég námundaði vitlaust. Munar bara einni tölu í dæmunum báðum á að þau séu rétt.
Jæja, seinni hlutinn af FBÓ er þó eftir og hann gildir 60% sem betur fer. Þó að hann sé víst miklu erfiðari. Help!
Annars er það að frétta að ég er búin að segja upp á Dubliner. Konan var ekkert fúl eins og ég bjóst við. Ég var tilbúin með þvílíka ræðu en það reyndist engin þörf á að nota hana hehe :) En já, ég er bara mjög fegin. Lenti líka í einu leiðinlegu á sunnudagsmorguninn á leiðinni úr vinnu í bílinn minn. Einhver strákur sem var vel í því elti mig og vildi ekki láta mig vera, svo næ ég smá forskoti á hann og dríf mig inn í bílinn og læsi honum strax sem betur fer því síðan reynir þessi „psycho“ að opna bílinn! Mér stóð nú ekki á sama á tímabili.
Við í bekknum mínum erum alvarlega að spá í að fara til Mílanó í febrúar á ferðamálasýningu :D Ég er strax orðin spennt. Flugið er ekkert svo dýrt þ.e.a.s. ef við pöntum mjög bráðlega. Þetta yrði geðveikt.
Helgin er óvenjulega mikið plönuð hjá mér í þetta skiptið. Í kvöld er ég að fara að hitta Sigurborgu mína =) Á morgun er starfsdagur ÍTR þar sem við skreppum aðeins úr bænum og gerum ýmislegt skemmtilegt (verð líka á yfirvinnukaupi allan daginn takk fyrir!) Svo um kvöldið fer ég út að borða með vinnunni. Svo á sunnudaginn ætlum við Davíð að gera eitthvað skemmtilegt, út að borða og örugglega bíó. Hlakka til :) Svo ætla ég líka að læra auðvitað :P
Ég held að þetta sé svona helst í fréttum. Ég segi bara bless og góða helgi :) Ég ætla allavega að njóta helgarinnar :D
Lag færslunnar: Leaves - Race
